Cisse með tvö fyrir Newcastle - þriðja tap Swansea City í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2012 15:00 Mynd/Nordic Photos/Getty
Gylfa Þór Sigurðssyni tókst ekki að opna markareikning sinn á Liberty Stadium þegar Swansea City tapaði 0-2 á heimavelli á móti Newcastle í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Papiss Cisse sem var maður dagsins en hann skoraði bæði mörk Newcastle í leiknum. Swansea City var þarna að tapa sínum þriðja leik í röð og velsku nýliðarnir virðast aðeins vera að gefa eftir frábæra frammistöðu á þessu tímabili. Gylfi Þór var ógnandi eins og áður, átti nokkrar fínar tilraunir í leiknum en hafði ekki heppnina með sér. Papiss Cisse hefur þar með skorað tvö mörk í þremur leikjum í röð, 3-1 sigri á West Brom, 2-0 sigri á Liverpool og svo þessum 2-0 sigri á Swansea. Cisse hefur alls skorað 9 mörk í átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni síðan að hann kom frá Freibourg í janúar. Papiss Cisse skoraði fyrra markið sitt með góðu skoti strax á 5. mínútu eftir að Yohan Cabaye var fljótur að hugsa og stakk boltanum inn á hann í teignum. Seinna mark Cisse kom á 69. mínútu og var það mjög laglega afgreitt hjá Senegalmanninum. Hann fékk boltann líka aftur frá Yohan Cabaye en Frakkinn átti báðar stoðsendingarnar á hann í dag. Newcastle hefur unnið fjóra leiki í röð og Papiss Cisse hefur skorað í þeim öllum. Þessi sigur í dag þýðir að Newcastle-liðið er aðeins tveimur stigum á eftir Arsenal og Tottenham sem eru í 3. og 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Fleiri fréttir PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Sjá meira