Enski boltinn

Wolves ætlar að bjóða 3 milljónir punda í Björn Bergmann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn Bergmann í leik með U-21 landsliðinu.
Björn Bergmann í leik með U-21 landsliðinu. Mynd. / Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Woves ætli að bjóða 3 milljónir punda í íslenska framherjann Björn Bergmann Sigurðarson frá Lilleström í Noregi.

Ståle Solbakken, sem var á dögunum ráðinn nýr knattspyrnustjóri Wolves, hefur mikið álit á Birni og ætlar að leggja allt kapp í það að klófesta þennan snjalla leikmann.

Wolves féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili en markmiðin eru skýr, að komast aftur í deild meðal þeirra bestu og er Björn Bergmann ætti að styrkja liðið töluvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×