Tveir "risa"-sigrar hjá Wigan í röð - afdrifaríkar 94 sekúndur hjá Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2012 18:15 Mynd/AP
Wigan Athletic fylgdi eftir óvæntum sigri á Manchester United í síðustu viku með því að vinna 2-1 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var fjórði sigurinn í síðustu fimm leikjum hjá lærisveinunum hans Roberto Martinez en að sama skapi var þetta aðeins annað tap Arsenal-liðsins í síðustu 10 deildarleikjum. Wigan-liðið skoraði bæði mörkin sína á 94 sekúndna kafla í upphafi leiks og þrátt fyrir stórsókn Arsenal-manna og fjölda færa tókst þeim aðeins að skora eitt mark. Franco di Santo kom Wigan í 1-0 á 7. mínútu eftir sendingu frá Jordi Gomez. Arsenal var að taka hornspyrnu þegar Wigan náði skyndisókn sem endaði með að Di Santo skoraði. Arsenal-menn voru greinilega í miklu sjokki eftir þetta óvænta mark því það liðu ekki nema 94 sekúndur þar til að Jordi Gomez var búinn að koma Wigan í 2-0. Markið kom af stuttu færi á 8. mínútu eftir að Arsenal-vörninni tókst ekki að koma burtu fyrirgjöf frá Victor Moses. Thomas Vermaelen minnkaði muninn á 21. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Tomás Rosicky. Arsenal-liðið fékk fjölda færa þar sem eftir var leiksins en inn vildi boltinn ekki og gestirnir fögnuðu frábærum sigri. Wigan er nú búið að vinna fjóra leiki í síðustu fimm leikjum en meðal þeirra lið sem þeir hafa unnið á þessum kafla eru Manchester United, Arsenal og Liverpool. Wigan er þar með komið fimm stigum frá fallsæti en fyrir nokkrum vikum leit þetta ekki vel út hjá liðinu.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira