Sol Campbell ráðleggur stuðningsmönnum Englands að vera heima 28. maí 2012 10:45 Jermaine Pennant leikmaður Stoke í baráttunni gegn Sol Campbell sem lék með Newcastle árið 2011. Getty Images / Nordic Photos
Keppni á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu hefst eftir 11 daga en keppnin fer fram að þessu sinni í Póllandi og Úkraínu. Margir hafa áhyggjur af hvernig tekið verður á móti áhorfendum í þessum löndum og hafa fjölskyldur tveggja enskra landsliðsmanna ákveðið að verða eftir á Englandi vegna fjölmargra mála sem komið hafa upp í tengslum við kynþáttaníð í Úkraínu og Póllandi. Sol Campbell, fyrrum landsliðsmaður Englands, ráðleggur enskum stuðningsmönnum að ferðast ekki á EM að þessu sinni. Fjölskyldur Theo Walcott og Alex Oxlade-Chamberlain, leikmanna Arsenal, ætla að verða eftir á Englandi. Ástæðan er ótti þeirra við atvik sem gætu komið upp sem tengjast kynþáttafordómum. Campbell er á þeirri skoðun að UEFA hafi gert mistök með því að velja Pólland og Úkraínu í þetta verkefni. „Þeir gerðu mistök," segir hinn 37 ára gamli Campbell í þættinum Panorama sem sýndur var á BBC. Í þættinum voru atvik sýnd frá fótboltavöllum í Úkraínu þar sem að ráðist var á áhorfendur af asískum uppruna, fjöldi áhorfenda heilsaði að hætti nasista, og kynþáttaníð í garð hörundsdökkra leikmanna var mjög áberandi. „Þetta eru mistök. UEFA átti að gera þá kröfu að vandamálin yrðu leyst áður en þessi lönd gætu fengið keppnina. Það eru gerðar of litlar kröfur til þeirra landa sem fá að halda þessa frábæru keppni," segir Campbell m.a. í þættinum. UEFA hefur sagt að vandmálin sem tengjast þessum löndum séu á ábyrgð knattspyrnusambanda viðkomandi landa. Campbell ráðleggur stuðningsmönnum enska landsliðsins að fara ekki á EM í sumar. „Verið heima hjá ykkur og horfið á keppnina í sjónvarpi. Ekki taka áhættuna því þið gætuð komið heim í kistu," sagði Campbell m.a. í þættinum.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Sundæfingar Andreu skiluðu silfurverðlaunum á breska meistaramótinu Sport Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Handbolti Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Íslenski boltinn FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér Körfubolti KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Sjá meira