Balotelli búinn að biðjast afsökunar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2012 20:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Mario Balotelli, framherji Manchester City, hefur beðist afsökunar á rauða spjaldinu sem hann fékk á móti Arsenal í gær. Balotelli fékk þá sitt annað gula spjald á 88. mínútu en Arsenal hafði skömmu áður skorað eina mark leiksins. Balotelli var reyndar í ruglinu allan leikinn og hefði getað verið búinn að fá rauða spjaldið mun fyrr. „Ég er mjög leiður yfir því sem gerðist og hvernig ég brást Man City og þá sérstaklega Roberto Mancini sem ég ber mikla virðingu fyrir og elska," sagði Mario Balotelli í viðtali við Sky. „Varðandi framtíð mína hjá City þá verðum við bara að sjá til í sumar. Ég mun þá ræða mín mál við félagið," sagði Balotelli. Roberto Mancini hraunaði yfir leikmanninn í leikslok og það var að heyra á orðum ítalska stjórans að Mario Balotelli spilaði ekki fleiri leiki fyrir hann á þessu tímabili. Framkoma Mario Balotelli hefur einnig skapað óvissu í kringum framtíð hans í ítalska landsliðinu en Cesare Prandelli, þjálfari Ítala, tók hann út úr landsliðshópnum eftir að leikmaðurinn stappaði á Scott Parker í janúar. „Ég vil endilega spila með landsliðinu. Ég braut bara tvisvar af mér í leiknum. Ég er þegar búinn að missa af landsliðinu vegna eins slæms atviks og ætla ekki að láta slíkt koma fyrir aftur," sagði Mario Balotelli. Balotelli telur augljóslega tæklinguna á Alexandre Song ekki með í fyrrnefndri tölfræði enda sá dómarinn Martin Atkinson ekkert athugavert við þá ruddatæklingu framherjans.
Mest lesið Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela Fótbolti Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Íslenski boltinn