United með átta stiga forskot - glórulaust rautt spjald á fyrirliða QPR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2012 12:00 Wayne Rooney fagnar marki sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United er komið með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Queens Park Rangers á Old Trafford í dag. United var manni fleiri frá 15. mínútu þegar Shaun Derry, fyrirliði QPR, fékk rautt spjald og dæmt á sig víti fyrir lítið brot á Ashley Young. Þetta var glórulaus dómur því Ashley Young var rangstæður en þessi rangi dómur gerði út um vonir Queens Park Rangers að fá eitthvað út úr leiknum í dag. Það er ljóst að hlutirnir eru að falla með meisturunum á lokasprettinum í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. Wayne Rooney skoraði úr vítinu sem Ashley Young fiskaði á Shaun Derry og það var eina mark fyrri hálfleiksins. United-liðið var miklu betra liðið en tókst ekki að bæta við mörkum fyrir hálfleik. Danny Welbeck skoraði mark í byrjun seinni hálfleiks en það var dæmt af vegna rangstöðu en Paul Scholes kom United síðan í 2-0 á 68. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig eftir sendingu frá Rafael. Manchester United hefur þar með unnið átta leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og ennfremur 11 af síðustu 12 deildarleikjum frá og með 14. janúar. Manchester City getur minnkað muninn í fimm stig á ný þegar liðið heimsækir Arsenal seinna í dag.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira