Mancini: Balotelli á skilið að fá lengra bann Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2012 17:42
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, var allt annað en ánægður með lið sitt eftir tapið gegn Arsenal í dag. Það hefur ekkert gengið hjá liðinu síðastliðin mánuð og eftir tapið á Emirates-vellinum í dag er liðið átta stigum á eftir Manchester United í öðru sæti deildarinnar. „Við vorum einfaldlega lélegri aðilinn í dag og áttum ekkert meira skilið úr þessum leik. Það getur allt gerst í fótbolta og við neitum að gefast upp." Mario Balotelli slapp með skrekkinn í byrjun leiks þegar hann tæklaði Alex Song, leikmann Arsenal, og átti réttilega að fá beint rautt spjald. Martin Atkinson, dómari leiksins, sá ekki atvikið og dæmdi ekki einu sinni aukaspyrnu. Balotelli fékk reyndar tvö gul spjöld síðar í leiknum og fauk af velli. „Frá hliðarlínunni sá ég ekki atvikið vel en ég er búinn að sjá það núna á myndbandi og hann átti að fá rautt spjald í upphafi leiksins." „Ég á í raun ekki til orð yfir hegðun hans í dag. Hann hefur gríðarlega hæfileika og er frábær leikmaður en svona hegðun er ekki hægt að verja. Hann olli mér miklum vonbrigðum í dag." „Það kæmi mér ekki á óvart ef Balotelli fengi lengra bann í vikunni og í raun á hann það skilið. Hann verður að þroskast og haga sér eins og maður. Ég veit í raun ekki hvað ég get sagt eftir svona hegðun."
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira