Antonio Valencia: 13 stoðsendingar í síðustu 14 leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2012 12:30
Antonio Valencia hefur spilað frábærlega með Manchester United síðustu mánuði og á mikinn þátt í því að liðið er komið með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Valencia skoraði fyrra marið og lagði upp það síðara í 2-0 sigri á Blackburn á mánudagskvöldið. Antonio Valencia hefur nú gefið 13 stoðsendingar í síðustu 14 deildarleikjum sínum auk þess að skora í þeim fjögur mörk sjálfur. Hann var meiddur í upphafi tímabilsins og var aðeins tvisvar í byrjunarliðinu fram í desember en lagði upp þrjú mörk í sigri á Wolves 10. desember og hefur ekki litið til baka síðan. „Ég er alltaf að reyna að bæta mig og minn leik. Það eru stjórinn og starfsmenn liðsins sem leggja mat á minn leik en ég alltaf ánægður að heyra eitthvað jákvætt um mína frammistöðu hvort sem það er frá fjölmiðlamönnum eða stuðningsmönnum," sagði Antonio Valencia við Daily Mirror. „Það eina sem ég get gert er að vera þakklátur og svona virkar bara sem hvatning fyrir mann að ná lengra og gera enn betur. Ég er mjög ánægður með að vera laus við meiðslin og vonandi fær ég tækifæri til að spila til enda tímabilsins," sagði Antonio Valencia hógvær. Það er hægt að sjá mark og stoðsendingu Antonio Valencia á móti Blackburn með því að smella hér fyrir ofan.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti