Manchester United landar Kagawa Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júní 2012 09:09 Kagawa fagnar bikarmeistaratitlinum með Dortmund. Nordic Photos / Getty
Fátt getur komið í veg fyrir að Shinji Kagawa gangi til liðs við Manchester United frá Borussia Dortmund. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverðið auk þess sem kaup og kjör Kagawa hjá enska félaginu eru frágengin. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Manchester United þar sem mikilli ánægju er lýst yfir ákvörðun Kagawa að ganga í raðir enska liðsins. „Leikmaðurinn á aðeins eftir að standast læknisskoðun og fá atvinnuleyfi í Bretlandi. Reiknað er með því að þau mál verði frágengin fyrir lok júní." Manchester United og Dortmund hafa átt í viðræðum um japanska landsliðsmanninn í nokkrar vikur. Sir Alex Ferguson mætti meðal annars á bikarúrslitaleikinn í Þýskalandi í maí. Þar sá hann Kagawa skora eitt og leggja upp annað í 5-2 sigri Dortmund á FC Bayern. Talið er að kaupverðið sé í kringum 12 milljónir punda eða sem nemur rúmum 2,4 milljörðum íslenskra króna. Það getur þó hækkað með tímanum eftir frammistöðu og spiltíma Kagawa upp í 3,6 milljarða króna að því er Guardian-fréttastofan greinir frá. Kagawa gekk til liðs við Dortmund fyrir aðeins 250 þúsund pund eða sem nemur 50 milljónum króna árið 2006 frá Cerezo Osaka í Japan. Þýska félagið hagnast því ansi vel á japanska miðjumanninum.
Mest lesið Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Fótbolti „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Körfubolti Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Enski boltinn Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Íslenski boltinn Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Enski boltinn Vængmennirnir fimm sem United vill losna við Fótbolti Sóknin enn vandamál: „Okkur skortir hraða“ Fótbolti Ætlar að vera lengi hjá Spurs: „Ég hef aldrei verið rekinn“ Fótbolti Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Golf Fleiri fréttir Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Sjá meira