Erlent

Kynlífsverkfall í Tógó

mynd/AFP
Mannréttindasamtök í Tógó hvetja nú konur landsins til að neita karlmönnum um kynlíf í eina viku. Er þetta gert í mótmælaskyni við forseta landsins en þess er krafist að hann segi af sér.

Með þessu vilja konurnar vekja reiði karlanna og mun það setja aukinn kraft í mótmælin gegn yfirvöldum í Tógó.

Kynlífsverkföll eru ekki ný af nálinni en konur í Líberíu kyn-sveltu einnig karlmenn sína í friðarbaráttu þar í landi fyrir nokkrum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×