Enski boltinn

Barton tvíkærður | Gæti fengið níu leikja bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Joey Barton, leikmaður QPR, hefur fengið tvær kærur á sig frá enska knattspyrnusambandinu vegna hegðun hans í leiknum gegn Manchester City um helgina.

Barton fékk þá beint rautt spjald fyrir að gefa Carlos Tevez olnbogaskot. Eftir það missti hann endanlega stjórn á skapi sínu og sparkaði niður Sergio Agüero auk þess sem hann reyndi að skalla Vincent Kompany.

Fékk hann kærurnar tvær fyrir tvö síðastnefndu atvikin þar sem dómarinn gat ekki refsað honum frekar - enda nýbúinn að reka hann af velli.

Barton verður í banni í fyrstu fjórum leikjum QPR á næsta tímabili en svo gæti farið að hann verði dæmdur í allt að níu leikja bann verður hann fundinn sekur í báðum kæruliðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×