Juventus vill tefla fram van Persie og Suarez Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júlí 2012 11:00
Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hefur tjáð Robin van Persie að það vilji að Hollendingurinn spili í framlínu liðsins við hlið Luis Suarez, framherja Liverpool. BBC greinir frá þessu. Juventus er eitt þriggja liða sem sýnt hafa Hollendingnum áhuga. Manchester-liðin City og United vilja einnig sýnt Hollendingnum áhuga þó aðeins sé staðfest að United hafi gert tilboð í van Persie. Því tilboði, sem talið er hafa verið í kringum 10 milljónir punda eða sem nemur tveimur milljörðum króna, var hafnað. Van Persie neitaði á dögunum opinberlega að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Arsenal sem rennur út að ári. Talið er að forráðamenn Juventus vilji með þessu sýna van Persie þann metnað sem Hollendingurinn er sagður hafa. Í yfirlýsingu Van Persie á dögunum sagði hann metnaðarleysi forráðamanna Arsenal hafa orðið til þess að hann þyrfti að yfirgefa félagið. Talið er að forráðamenn Liverpool vilji umfram allt halda Suarez hjá félaginu. Úrúgvæinn er samningsbundinn félaginu til ársins 2016 og hefur Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri félagsins, hafið viðræður við Suarez um framlengingu á samningnum. Van Persie var markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 30 mörk í 38 leikjum. Hollendingurinn 28 ára var auk þess valinn leikmaður tímabilsins af kollegum sínum í deildinni og fréttamönnum. Suarez hefur skorað 15 mörk fyrir Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið í janúar 2011. Hann var á síðustu leiktíð dæmdur í átta leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra, varnarmanns Manchester United.
Mest lesið Þrítug meint kærasta Lamine Yamal fær morðhótanir Fótbolti „Ég vona að þú fáir krabbamein“ Sport Svona verða stelpurnar okkar klæddar á EM Fótbolti Frakkar syrgja fótboltagoðsögn Fótbolti Þýski tveggja metra Messi orðaður við ensku úrvalsdeildina Sport Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth Enski boltinn Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Körfubolti Jón Daði þakkar fyrir sig og flytur heim til Íslands Fótbolti Í beinni: Stjarnan - Keflavík | Gerast óvæntir hlutir í Garðabæ? Íslenski boltinn Man Utd verði meistari í karla- og kvennaflokki 2028 Fótbolti Fleiri fréttir Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sjá meira