Enski boltinn

Ferguson segir að Vidic verði klár í slaginn með Man Utd

Nemanja Vidic æfði á æfingasvæði Manchester United um s.l. helgi.
Nemanja Vidic æfði á æfingasvæði Manchester United um s.l. helgi. Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, staðfesti í gær að serbneski landsliðsmaðurinn Nemanja Vidic verði klár í slaginn með liðinu þegar keppnistímabilið í ensku úrvaslsdeildinni hefst í ágúst. Vidic, sem var fyrirliði Man Utd á síðustu leiktíð, slasaðist illa á hné í leik í Meistaradeildinni gegn Basel í sviss en leikurinn fór fram í desember.

Vidic sleit liðbönd í hnénu og krossband trosnaði. „Vidic mun byrja með okkur þegar keppnistímabilið hefst, ég er alveg viss um það. Hann hefur æft vel en það var engin ástæða til þess að taka hann með í þessa æfinga- og keppnisferð," sagði Ferguson við fréttamenn í gær en liðið mun leika á næstunni í Suður-Afríku og Kína.

Varnarmaðurinn Jonny Evans verður ekki klár í slaginn með liðinu þegar keppnistímabilið hefst en hann er enn að jafna sig á meiðslum á fæti sem hann varð fyrir í apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×