Jose Enrique: Santi Cazorla er einn af þeim bestu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2012 09:00 Santi Cazorla. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jose Enrique, spænski varnarmaðurinn hjá Liverpool, hefur mikla trú á landa sínum Santi Cazorla sem kom til Arsenal fyrir þetta tímabil. Liverpool og Arsenal mætast í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hefst leikurinn klukkan 12.30 á Anfield í Liverpool. Jose Enrique man vel eftir Santi Cazorla frá viðureignum þeirra í spænsku úrvalsdeildinni á árum áður en spænski miðjumaðurinn hefur vakið mikla athygli í fyrstu leikjum sínum í enska boltanum. „Santi Cazorla er frábær leikmaður og einn af þeim bestu," sagði Jose Enrique í viðtali á heimasíðu Liverpool. „Arsenal er með magnað lið. Þeir hafa selt nokkra leikmenn eins og Robin van Persie í ár og Samir Nasri í fyrra en þeir finna alltaf nýja menn og halda sér meðal efstu fjögurra," sagði Jose Enrique. „Við erum bara með eitt stig í deildinni eins og er en Real Madrid hefur byrjað eins og við og það er ekkert að marka þetta ennþá. Ef við náum að vinna þennan leik þá verður það jákvæð skilaboð til allra. Fjögur stig í þremur leikjum, öll á móti Manchester City og Arsenal, er í góðu lagi mín vegna," sagði Jose Enrique. Liverpool hefur oftast spilað vel á móti stóru liðunum á Anfield og Jose Enrique vonast til þess að liðið haldi uppteknum hætti í dag. „Ég held að við spilum betur á móti bestu liðunum. Við erum að spila á Anfield sem er gott og ef við spilum eins vel og á móti Manchester City þá getum við unnið Arsenal," sagði Jose Enrique.
Mest lesið Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn Segir slagsmálin í klefanum hafa verið ofbeldisfull og ofsafenginn Fótbolti Grófu sig undir girðingu og stálu milljónum frá félaginu Fótbolti Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti Magnús Eyjólfsson er látinn Sport „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Körfubolti Stjarnan er meistari meistaranna Handbolti „Djöfull er gaman að vinna loksins aftur“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Virtus 2-1 | Blikar bara einu marki yfir Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Liverpool búið að selja leikmenn fyrir meira en 33 milljarða í sumar Pep Guardiola hjálpar Ten Hag Isak rýfur þögnina og segir Newcastle hafa svikið loforð Völdu Mo Salah bestan en Chris Wood frekar en Haaland í lið ársins Sóla ekki skemmt yfir Owen-treyju: „Vil ekki sjá hana“ Eze fari til Spurs fyrir vikulok Sjáðu mark Chiesa frá öllum vinklum og öll hin mörkin Isak skrópar á verðlaunahátíð Úlfarnir kaupa hraðasta leikmann Ítalíu Klárlega búið að vanmeta Man. City Chiesa núna ákveðinn í að vera áfram hjá Liverpool Sjá meira