Erlent

Enn loga eldar í Venesúela

mynd/AFP
Enn loga eldar í olíuhreinsistöðinni sem sprakk í Venesúela í gær. Slökkviliðsmenn berjast nú við elda tveimur olíugeymum.

Sprengingin var gríðarlega öflug en talið er að rúmlega fjörutíu hafi fallið henni. Allt að tvö hundruð hús eyðilögðust í höggbylgjunni sem myndaðist.

Forseti Venesúela hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á atvikinu. Ekki leikur grunur á að um hryðujuverk hafi verið að ræða og er talið að gasleki hafi valdið sprengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×