Erlent

Curiosity tekur því rólega um helgina - fær heilaígræðslu

Nýlega mynd frá Curiosity.
Nýlega mynd frá Curiosity. mynd/NASA/JPL-Caltech
Vitbíllinn Curiosty, sem nú starir út í loftið í 536 milljón kílómetra fjarlægð frá Jörðu, mun eyða næstu dögum í að gangast undir heilaígræðslu.

Áður en Curiosity hefur einmanlega rannsóknarferð sína Mars þurfa vísindamenn hér á jörðu niðri að uppfæra hugbúnað þess.

Lendingarfasi farsins var svo flókinn að vísindamenn þurftu að nýta vinnsluminnið í það eina verkefni.

Nú þegar Curiosity er lent á Mars þarf að endurræsa búnaðinn og virkja gjörsamlega nýja ferla — skipanir sem munu á endanum skera úr um hvort að mannkyn eigi í raun forna ættingja á Mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×