Erlent

Sveigði frá elg - hafnaði á brúnbirni

Norskum ökumanni brá heldur í brún þegar elgur hljóp í veg fyrir bíl hans í Heiðmörk, skammt frá bænum Hanestad, í vikunni.

Bílstjóranum tókst að sveigja framhjá dýrinu. En þar með var ekki öllum haska afstýrt, Því bíllinn hafnaði í staðinn á bjarndýri sem stóð í vegkantinum.

Ökumanninn sakaði ekki en talið er að björninn hafi særst í árekstrinum og rekja skógarverðir nú slóð hans.

Rúmlega hundrað þúsund elgir eru í Noregi á meðan bjarndýrin eru aðeins um hundrað og fimmtíu talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×