Enski boltinn

Manchesterliðin vilja borga 3 milljarða kr. fyrir Robin van Persie

Robin van Persie.
Robin van Persie. Nordic Photos / Getty Images
Dailymail greinir frá því að Manchester City og Manchester United hafi lagt fram tilboð í hollenska landsliðsframherjann Robin van Persie. Ítalska meistaraliðið Juventus hefur einnig sýnt Arsenal-leikmanninum áhuga. Manchesterliðin vilja kaupa leikmanninn á 15 milljónir punda eða sem nemur 3 milljörðum kr.

Forráðamenn Arsenal vilja fá um 4 milljarða kr. fyrir markakóng deildarinnar eða 20 milljón pund. Robin van Persie á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal. Hann fer ekki með liðinu í æfinga-og keppnisferð sem hefst um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×