Enski boltinn

Koscielny samdi á ný við Arsenal | fimm ára samningur

Laurent Koscielny samdi við Arsenal til fimm ára.
Laurent Koscielny samdi við Arsenal til fimm ára. Getty Images / Nordic Photos
Laurent Koscielny hefur framlengt samingi sínum við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal til fimm ára. Varnarmaðurinn sem er 26 ára gamall var einn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð en hann kom til Englands frá Lorient í Frakklandi árið 2010.

Koscielny, sem er franskur landsliðsmaður, var rekinn útaf í sínum fyrsta leik með Arsenal. Hann skoraði gríðarlega mikilvægt mark þegar hann tryggði Arsenal sigur gegn WBA í lokaumferðinni og þar með tryggði Arsenal sér þriðja sæti í deildinni og þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×