Pearce ósáttur við skorður settar af enska knattspyrnusambandinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júlí 2012 22:00 Nordicphotos/Getty
Stuart Pearce, þjálfari Ólympíuliðs Breta í knattspyrnu, er ósáttur við að hafa ekki fengið að velja þá leikmenn Englands eru voru í landsliðshópnum á Evrópumótinu fyrr í sumar. Ef frá er talinn markvörðurinn Jack Butland er enginn leikmaður Englands sem lék í Póllandi og Úkraínu í landsliðshópi Breta. Ekki er ólíklegt að Pearce, sem hafði áður sagst skilja ákvörðun enska knattspyrnusambandsins að leyfa ekki val á A-landsliðsmönnum Englendinga frá EM, hafi breytt um skoðun eftir að aðrar þjóðir tilkynntu landsliðshópa sína. Javi Martínez, Jordi Alba og Juan Mata eru til að mynda allir í Ólympíuhópi Spánverja en þeir komu allir við sögu á Evrópumótinu í sumar. „Þegar vinnuveitendur mínir biðja mig um skýrslu að leikunum loknum mun ég gera það ljóst að einn til tveir leikmenn sem ég gat ekki valið áttu heima hérna," er haft eftir Pearce í Guardian. Pearce vitnar í þátttöku sína á HM á Ítalíu 1990 og Evrópumótinu 1996 á Englandi sem hafi verið einstök upplifun. Ensku landsliðsmennirnir Alex Oxlade-Chamberlain, Theo Walcott, Andy Carroll, Danny Welbeck og Jordon Henderson hefðu allir verið gjaldgengir í Ólympíuhópinn enda yngri en 23 ára. Enginn þeirra stóð Pearce til boða. Hvert landslið má svo hafa þrjá eldri leikmenn. Einn þeirra er fyrirliðinn og Walesverjinn Ryan Giggs. „Ég hef notið þess að vinna með Ryan Giggs, hlaupa á eftir honum og reyna að ná honum. Hann hefur setið fundi með þjálfurunum svo við höfum að því leyti leitað í smiðju hans og borið hluti undir hann. Það er eitthvað sem ég hef ekki áður gert með fyrirliða," er haft eftir Pearce. Breska liðið mætir því brasilíska í æfingaleik á Riverside-leikvanginum í Middlesbrough á morgun.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira