Kári fer frá Aberdeen í sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. maí 2012 09:49 Kári Árnason. Nordic Photos / Getty Images
Craig Brown, knattspyrnustjóri skoska úrvalsdeildarfélagsins Aberdeen, hefur staðfest að Kári Árnason muni fara frá félaginu nú í sumar. Kári átti gott tímabil með Aberdeen en samningar tókust ekki á milli hans og félagsins fyrr á tímabilinu þegar viðræður voru í gangi í janúar. Brown sagði að Kári þyrfti að slá af launakröfum sínum. Kári var svo orðaður við lið í Englandi og Frakklandi en þrátt fyrir það gaf Kári í skyn í viðtölum undir lok tímabilsins að hann væri ánægður hjá Aberdeen og reiðubúinn að vera áfram. En nú hefur Brown staðfest að hann hafi gert aðrar áætlanir fyrir sína miðvallarleikmenn og því muni Kári fara frá félaginu í sumar. „Við neyddumst til að gera aðrar áætlanir þegar hann hafnaði tilboði okkar fyrir nokkrum mánuðum síðan," sagði Brown. „Gavin Rae og Stephen Hughes framlengdu samninga sína og því finnst mér við vera vel settir á miðri miðjunni." Kári hélt utan í atvinnumennsku árið 2004 og hefur síðan þá spilað með Djurgården í Svíþjóð, AGF og Esbjerg í Danmörku, Plymouth í Englandi og nú síðast Aberdeen. Hann er 29 ára gamall og á átján landsleiki að baki. Síðast spilaði hann með landsliðinu í vináttulandsleik gegn Svartfjallalandi í lok febrúar.
Fótbolti Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira