Íslenski boltinn

Pepsimörkin: Óheppilegt að markavarðaþjálfari landsliðsins starfi hjá KR

Hjörvar Hafliðason knattspyrnusérfræðingur Stöðvar 2 sport er ekki sammála því að markvarðaþjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta sé einnig að starfa fyrir Íslandsmeistaralið KR. Hjörvar vitnaði í ummæli Kjartans Henry Finnbogasonar í viðtali á fotbolti.net eftir 2-0 sigur KR gegn FH í fyrrakvöld þar sem að Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður skoraði sjálfsmark.

„Ég velti því fyrir mér. Ef Gulli (Gunnleifur Gunnleifsson) hefur einhverja veikleika á þá Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari landsliðsins að vinna í þeim veikleikum. Í stað þess að segja sóknarmönnum KR frá þeim," sagði Hjörvar m.a. í Pepsimörkunum á Stöð 2 sport í kvöld þar sem að 5. umferð Íslandsmótsins var gerð upp.

Kjartan Henry Finnbogason tryggði 2-0 sigur KR gegn FH á miðvikudaginn með skoti sem hafnaði í Gunnleifi og var markið skráð sem sjálfsmark á landsliðsmarkvörðinn. Eftir leikinn sagði Kjartan Henry m.a. „Gummi Hreiðars sagði mér að Gulli tæki alltaf sénsinn."

„Þetta er óheppileg staða og það á ekki að vera þannig að markvarðaþjálfari landsliðsins eigi einnig að vera þjálfari hjá besta félagsliði landsins," sagði Hjörvar m.a. í þættinum.


Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Fram 0-2

Framarar unnu þægilegan sigur á Breiðablik, 2-0, í fimmtu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Kristinn Ingi Halldórsson og Jón Gunnar Eysteinsson gerðu mörk Framara í leiknum. Breiðablik hefur aðeins náð að skora eitt mark það sem af er mótsins og sóknarleikur þeirra virkilega bragðdaufur.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - ÍA 1-1

Garðar Bergmann Gunnlaugsson reyndist hetja Skagamanna í Garðabænum í kvöld. Garðar kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og var ekki lengi að skora jöfnunarmark Skagamanna. Gestirnir fóru nokkuð sáttir heim að loknum hörkuleik þar sem Stjarnan var á heildina litið sterkari aðilinn.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - ÍBV 1-0

Keflvíkingar unnu í kvöld óverðskuldaðan 1-0 sigur á Eyjamönnum í fimmtu umferð Pepsi-deildarinnar. Eina mark leiksins gerði Jóhann Birnir Guðmundsson eftir hrikaleg mistök Abel Dhaira í marki ÍBV.

Pepsimörkin Extra: Stjörnumenn deila sturtuklefanum með kvennaliðinu

Hjörvar Hafliðason ræddi við bræðurna Jóhann og Daníel Laxdal úr liði Stjörnunnar í Garðabæ þar sem þeir fóru yfir ýmsa hluti hjá félaginu. Í þessu innslagi í Pepsimörkunum Extra á Vísi fékk Hjörvar m.a. að skoða búningsklefa Stjörnunnar. En karla – og kvennalið félagsins eru með sameiginlegan sturtuklefa

Seinna mark KR var sjálfsmark Gunnleifs

Þorvaldur Árnason, knattspyrnudómari, hefur nú staðfest með skýrslu sinni að síðara mark KR-inga gegn FH í gær var sjálfsmark markvarðarins Gunnleifs Gunnleifssonar.

Martin: Vorum að reyna leika eftir klúðrið hjá Lennon og Hewson

Gary Martin var ánægður með stig Skagamanna í Garðabænum í kvöld. „Það eru ekki mörg lið sem ná í þrjú stig hér. Þeir eru með sterkt lið. Við hefðum þegið eitt stig fyrir leikinn og erum sáttir," sagði Martin en Skagamenn komu enn á ný sterkir til leiks í síðari hálfleik. Martin segir það enga tilviljun.

Bjarni Guðjóns kominn upp fyrir þjálfarana sína á fyrirliða-listanum

Tölfræði twitter-síða KR-inga, KRstats, segir frá því í dag að Bjarni Guðjónsson sé kominn upp fyrir þjálfara sína, Rúnar Kristinsson og Pétur Pétursson, yfir fjölda leikja sem fyrirliði KR í efstu deild. Bjarni er á sínu þriðja ári sem fyrirliði en sigurleikurinn á móti FH í gær var hans 46. leikur sem fyrirliði KR-liðsins í Pepsi-deildinni.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Selfoss - Grindavík 3-3

Grindvíkingar komu til baka og sóttu stig á Selfossi með því að skora tvö mörk í lok leiksins og jafna í leik liðanna í 5. umferð Pepsi-deild karla. Óli Baldur Bjarnason skoraði jöfnunarmarkið í uppbótartíma en Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson átti þrumuskot í stöngina rétt áður en leikurinn var flautaður af 3-3.

Skagamenn enn ósigraðir - myndir

Skagamenn eru ólseigir og þeir sönnuðu það enn á ný í kvöld er þeir sóttu Stjörnuna heim í Garðabæinn og nældu í gott stig.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - Valur 3-1

Fylkir vann sanngjarnan sigur á Val í fjörugum leik í Árbænum í kvöld. Árni Freyr Guðnason skoraði í tvígang fyrir Fylki áður en, Matthías Guðmundsson minnkaði muninn rétt fyrir hlé. Davíð Þór Ásbjörnsson tryggði stigin þrjú með gulli af marki undir lok leiks úr aukaspyrnu af löngu færi.

ÍA getur jafnað nýliðamet Vals í kvöld

Stórleikur kvöldsins í Pepsi-deild karla er á milli Stjörnunnar (3. sæti með 8 stig) og ÍA (1. sæti með 12 stig) en bæði lið eru taplaus og til alls líkleg í toppbaráttu deildarinnar ef marka má upphaf mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×