Swansea þarf væntanlega að tvöfalda félagsmetið til að kaupa Gylfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2012 12:30 Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Luis Suarez í lokaumferðinni. Mynd/Nordic Photos/Getty
Eins og kom fram í gær þá stefnir allt í það að Swansea City sé að ná samningum við þýska liðið Hoffenheim um kaup á íslenska landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni. Stjórnarmaðurinn Huw Jenkins eyddi síðustu dögum í Þýskalandi við að reyna að semja um kaupverð og velskir fjölmiðlar hafa sagt frá því að það sé stutt í að samningar náist. Huw Jenkins er kominn til baka til Swansea til þess að fara yfir stöðu mála með stjóranum Brendan Rodgers en þó að Gylfi hafi gefið það út að hann vilji vera áfram hjá Swansea-liðinu, þá hefur heyrst af miklum áhuga annarra liða eins og Newcastle. Hoffenheim hefur þegar hafnað einu tilboði Swansea í Gylfa og það er orðið ljóst að ef velska liðið ætlar að kaupa íslenska miðjumanninn frá þýska liðinu þá þurfa menn væntanlega að meira en tvöfalda þá upphæð sem félagið hefur mest greitt fyrir einn leikmann. Dýrasti leikmaðurinn í sögu Swansea er framherjinn Danny Graham en Swansea borgaði 3,5 milljónir punda þegar félagið keypti hann frá Watford í fyrrasumar. Hoffenheim borgaði Reading 6,5 milljónir punda fyrir Gylfa og það er í það minnsta öruggt að þýska liðið ætlar ekki að tapa á íslenska landsliðsmanninum. Velskir fjölmiðlar telja líklegt að kaupverðið verði á endanum í kringum tíu milljónir evra eða um 8 milljónir punda. Fari svo mun Gylfi verða langdýrasti leikmaðurinn í 100 ára sögu Swansea enda Swansea-menn búnir að tvöfalda félagsmetið til að kaupa hann.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira