Enski boltinn

Sjáðu mörkin frá Papiss Cisse gegn Chelsea | fallegustu mörk ársins?

Hinn ótrúlegi markaskorari Newcastle, Papiss Cisse, tryggði Newcastle gríðarlega mikilvægan útisigur á Chelsea í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Newcastle í 0-2 sigri. Sjón er sögu ríkari og mörkin eru nú aðgengileg á Vísi.

Newcastle er þar með fjórum stigum á undan Chelsea í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Eina von Chelsea um að komast í Meistaradeildina á næsta virðist vera að vinna úrslitaleikinn gegn FC Bayern.

Fyrra mark Cisse í kvöld var mjög huggulegt. Skot í teignum sem söng í netinu. Seinna markið var lyginni líkast og kom í uppbótartíma. Hann tók þá viðstöðulaust skot utan af kanti sem flaug yfir Cech og í markið. Eitt af mörkum ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×