Enski boltinn

Sagna: Hann fótbraut mig viljandi

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Fjarvera Sagna er mikið áfall fyrir Frakka í sumar
Fjarvera Sagna er mikið áfall fyrir Frakka í sumar
Bacary Sagna, leikmaður Arsenal, lenti í slæmu fótbroti í leik gegn Norwich í gærdag. Hann segir Bradley Johnson, leikmann Norwich hafa brotið á sér viljandi.

Meiðslin gera það að verkum að Sagna mun koma til með að missa af Evrópumótinu með Frökkum í sumar.

„Hann ætlaði sér að gera þetta. Ég er með löppina á lofti og hann kemur inn í mig á fullri ferð," sagði Sagna,"

„Að sjálfsögðu er þetta mikið áfall. Þetta er virkilega sárt en svona er fótboltinn. Ég hef lent í þessu áður og kom þá til baka. Núna byrja ég aftur frá grunni og stefni á að koma ennþá sterkari til baka," sagði Sagna að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×