City tveimur stigum á eftir Untied | Tevez með þrennu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2012 00:03 Nordic Photos / Getty Images
Carlos Tevez hefur markað endurkomu sína í enska boltann á besta möglega máta en hann skoraði í dag þrennu í 6-1 sigri Manchester City á Norwich á útivelli í dag. Þar með minnkaði City forystu Manchester United á toppi deildarinnar í tvö stig. United á þó leik gegn Aston Villa á morgun til góða. Carlos Tevez, sem var í byrjunarliði Manchester City í fyrsta sinn síðan í september gegn West Brom á miðvikudagkvöldið var aftur í byrjunarliðinu í dag. Hann skoraði eitt marka City í 4-0 sigri liðsins á West Brom en í dag bætti hann um betur og skoraði þrennu. Hann kom City á bragðið með glæsilegu skoti á sautjándu mínútu áður en hann lagði upp næsta mark liðsins fyrir landa sinn, Sergio Agüero, um tíu mínútum síðar. Þannig var staðan í hálfleik en það fór nokkuð um stuðningsmenn City þegar að Andrew Surman náði að minnka muninn fyrir heimamenn í upphafi seinni hálfleiks. Hann skoraði með föstu skoti í vítateignum. Norwich átti nokkrar ágætar sóknir eftir þetta en náði þó ekki að jafna leikinn. Tevez skoraði svo þriðja mark City með skalla átján mínútum fyrir leiksins áður en Agüero gerði endanlega út um leikinn með þrumufleyg tveimur mínútum síðar. Tevez fullkomnaði svo þrennuna á 80. mínútu þegar hann færði sér varnarmistök í liði Norwich sér í nyt og skoraði auðvelt mark. Varamaðurinn Andrew Johnson skoraði svo sjötta og síðasta mark sinna manna eftir glæsilega sókn. Leikmenn City splundruðu varnarleik Norwich með nokkrum frábærum sendingum og var eftirleikurinn auðveldur fyrir Johnson. City hefur því skorað tíu mörk í tveimur leikjum síðan að Tevez kom aftur inn í byrjunarliði og með þessu áframhaldi er ljóst að United má alls ekki við því að misstíga sig á lokaspretti tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira