Markalaust í Lundúnarslagnum á Brúnni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. mars 2012 00:01 Cech þurfti að taka á honum stóra sínum í fyrri hálfleik.
Chelsea og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í Lundúnarslag á Stamford Bridge í dag. Leikmenn Tottenham naga sig vafalítið handarbökin en liðið fékk frábær færi til þess að tryggja sér sigur í leiknum. Tottenham hafði ekki lagt Chelsea að velli á Brúnni síðan í febrúar 1990. Liðið fékk skömminni skárri færi í frekar tíðindalitlum fyrir hálfleik en Peter Cech var vel á verði í marki Chelsea. Í síðari hálfleik fengu markstangirnar að kenna á því. Juan Mata átti frábæra aukaspyrnu í stöngina. Brad Friedel, markverði Spurs, var vafalítið létt enda stóð hann hreyfingarlaus og horfði á eftir knettinum. Skömmu síðar fékk Tottenham þrjú færi á jafnmörgum mínútum. Fyrst skallaði William Gallas framhjá úr dauðafæri. Þá komst Emmanuel Adebayor einn gegn opnu marki en Gary Cahill komst fyrir vandræðalega máttlitla afgreiðslu hans. Eftir hornspyrnuna skallaði Gareth Bale í þverslána. Adebayor skallaði svo frákastið yfir. Í uppbótartíma átti Gareth Bale fína aukaspyrnu sem stefndi neðst í markhornið en Peter Cech varði vel. Fernando Torres hóf leikinn á varamannabekknum en kom inn á fyrir Michael Essien stundarfjórðungi fyrir leikslok. Eftir leikinn hefur Tottenham áfram fimm stiga forskot á nágranna sína í fjórða sæti deildarinnar. Liðið hefur 55 stig en Chelsea 50. Tottenham hefur nú leikið fimm leiki án þess að vinna.
Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira