Breskir lögreglumenn bíða þess að geta handtekið Assange Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. ágúst 2012 11:30 Lögreglumenn fyrir utan sendiráð Ekvadors í Lundúnum. mynd/ afp.
Lögreglumenn hafa tekið sér stöðu fyrir framan sendiráð Ekvadors í Lundúnum og eru reiðubúnir til þess að handtaka Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, ef hann kemur út úr byggingunni. Stjórnvöld í Ekvador ákváðu í gær að veita Assange pólitískt hæli, en bresk stjórnvöld hafa heitið því að handtaka hann þegar hann yfirgefur sendiráð Ekvadors í Lundúnum. Staða Assange er flókin, en óhætt er að segja að hann hafi reitt bandarísk stjórnvöld til reiði þegar WikiLeaks lak trúnaðarupplýsingum úr sendiráðum Bandaríkjanna um allan heim í helstu fjölmiðla og á Netið. Að auki er hann sagður hafa gerst sekur um kynferðisbrot í Svíþjóð. William Hague, utanríkisráðherra Breta, segir að stjórnvöld þar í landi séu skuldbundin til þess að framselja Assange til Svíþjóðar vegna þeirra ásakana. Hann sagði að bresk stjórnvöld myndu ekki bregðast þeim skyldum sínum. Það er því ákveðin pattstaða komin upp á meðan Assange er lokaður inni í sendiráði Ekvadors. Hague viðurkenndi að sú pattstaða gæti varað í mánuði eða jafnvel ár, en Assange hefur ekki yfirgefið sendiráðið frá 19. júní síðastliðnum þegar hann fór þangað og sótti um pólitískt hæli.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Sjá meira