Erlent

Heimilt að framselja Ratko Mladic

Óli Tynes skrifar
RatkoMladic yfirhershöfðingi Serba.
RatkoMladic yfirhershöfðingi Serba.
Dómstóll í Serbíu hefur úrskurðað að heimilt sé að framselja Ratko Mladic hershöfðinga til Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna, þrátt fyrir fullyrðingar verjenda hans um að hann sé of heilsuveill. Verjendurnir segja að úrskurðinum verði áfrýjað á mánudag.

 

Ef áfrýjuninni er hafnað gæti Mladic verið kominn um borð í flugvél til Haag eftir nokkrar klukkustundir. Ef hann verður framseldur mun hann halda fram sakleysi sínu af ákærum um ódæðisverk Í Bosníustríðinu á árunum 1992-1995. Hann er sakaður um þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu.

 

Mladic stjórnaði persónulega fjöldamorðunum  í bænum Srebrenica þar sem áttaþúsund múslimakarlar og ungir drengir voru myrtir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×