Enski boltinn

Joe Cole tryggði Liverpool sigur - Tottenham og City unnu bæði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Johnson fagnar hér sigurmarki sínu.
Adam Johnson fagnar hér sigurmarki sínu. Mynd/AP
Manchester City og Tottenham héldu bæði sínu striki með eins marks sigrum í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Manchester City komst upp að hlið Manchester United á toppnum með sigri á Blackpool og Tottenham fór upp fyrir Chelsea með sigri á Fulham. Joe Cole tryggði Liverpool 2-1 sigur á Bolton með potmarki af stuttu færi í uppbótartíma.

Manchester City vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið vann 1-0 heimasigur á Blackpool. Adam Johnson skoraði sigurmarkið á 34. mínútu með skoti fyrir utan teig sem fór af varnarmanni og í netið. Tveimur mínútum síðar gat Carlos Tevez bætt við marki. Yaya Toure var þá felldur en Tevez skaut framhjá úr vítinu.

Gareth Bale tryggði Tottenham 1-0 sigur á Fulham með skallamarki á 42. mínútu sem kom eftir aukaspyrnu frá Hollendingnum Raphael van der Vaart.

Joe Cole tryggði Liverpool 2-1 sigur á Bolton í hugsanlega síðasta leik liðsins undir stjórn Roy Hodgson. Liverpool lék mun betur en í tapleiknum á móti Wolves en sigurmarkið kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Kevin Davies nýtti sér sofandahátt í vörn Liverpool rétt fyrir hálflek með því að skalla aukaspyrnu Matt Taylor inn af fjærstöng.

Fernando Torres jafnaði metin eftir aðeins rúmar þriggja mínútna leik í seinni hálfleik eftir að hann afgreiddi vel frábæra vippu Steven Gerrard inn í teiginn. Joe Cole kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið af stuttu færi í uppbótartíma.
Kenwyne Jones fagnar marki sínu.Mynd/Nordic Photos/Getty
West Ham vann 2-0 heimasigur á Úlfunum í botnslag deildarinnar og kom sér fyrir vikið upp úr botnsætinu. Robert Green varði nokkrum sinnum frábærlega frá sóknarmönnum Wolves áður en Roland Zubar varð fyrir því að skora sjálfsmark eftir að Carlton Cole missti af fyrirgjöf Frederic Piquionne. Freddie Sears innsiglaði síðan sigurinn í seinni hálfleik. West Ham fór upp úr fallsæti og alla leið upp í 15. sætið með þessum sigri.

Stoke var búið að tapa heimaleikjum á móti bæði Blackpool og Fulham að undanförnu en snéri við blaðinu með 2-0 heimasigri á Everton. Kenwyne Jones skoraði fyrra markið með skalla eftir glæsilegan undirbúning Matt Etherington en seinna markið var sjálfsmark Phil Jagielka.

Danny Welbeck og Darren Bent komu Sunderland í 2-0 á fyrstu 19 mínútunum á móti Blackburn og læirsveinar Steve Bruce komust aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð. Asamoah Gyan skoraði síðan þriðja markið undir lokin og innsiglaði 3-0 sigur.
Gareth Bale fagnar sigurmarki sínu.Mynd/AP
Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:

Liverpool-Bolton 2-1

0-1 Kevin Davies (43.), 1-1 Fernando Torres (49.)

Man City-Blackpool 1-0

1-0 Adam Johnson (34.)

Stoke-Everton 2-0

1-0 Kenwyne Jones (23.), 2-0 Sjálfsmark Phil Jagielka (69.)

Sunderland-Blackburn 3-0

1-0 Danny Welbeck (11.), 2-0 Darren Bent (19.), 3-0 Asamoah Gyan (89.)

Tottenham-Fulham 1-0

1-0 Gareth Bale (42.)

West Brom-Man Utd 1-2

0-1 Wayne Rooney (3.), 1-1 James Morrison (14.), 1-2 Javier Hernández (75.)



West Ham-Wolves 2-0


1-0 Sjálfsmark Ronald Zubar (51.), 2-0 Freddie Sears (79.)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×