Nóg að ræða á kaffistofunum eftir sigur Man Utd á Liverpool Elvar Geir Magnússon skrifar 9. janúar 2011 15:25
Kenny Dalglish fékk ekki þá byrjun sem hann óskaði þegar Manchester United vann Liverpool 1-0 í enska bikarnum í dag. Þrátt fyrir að vera einum fleiri stærstan hluta leiksins tókst heimamönnum aðeins að skora eitt mark en eru þó komnir áfram. Dalglish fékk martraðarbyrjun því Ryan Giggs kom United yfir eftir aðeins tveggja mínútna leik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Afar umdeildur dómur hjá Howard Webb sem taldi Daniel Agger hafa brotið á hinum búlgarska Dimitar Berbatov. Það var snerting en Berbatov hefði vel getað staðið í lappirnar. Hann ákvað þó að láta sig detta og uppskar víti fyrir vikið. Leikmenn Liverpool mótmæltu og það skiljanlega. Áfall fyrir Liverpool en þegar liðið virtist vera að ná völdunum á miðjunni kom annað áfall á 32. mínútu. Steven Gerrard fór í verulega heimskulega tæklingu gegn Michael Carrick, með báðar lappir á lofti. Óskiljanleg ákvörðun hjá Gerrard sem fékk réttilega rautt spjald frá Webb. Fyrirliði Liverpool á leið í þriggja leikja bann. Nemanja Vidic á við smávægileg meiðsli að stríða og var ekki með United í dag en Jonny Evans leysti hann af hólmi. Evans var nálægt því að skora annað mark heimamanna rétt fyrir hálfleikinn en skalli hans fór þá í stöngina. Liverpool gekk bölvanlega að skapa sér færi einum færri á meðan mótherjarnir áttu nokkrar stórhættulegar sóknir. Sóknarlota United þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir minnti á kúluspil og með hreinum ólíkindum að boltinn endaði ekki í netinu. Þegar stundarfjórðungur var eftir gerði Sir Alex Ferguson skiptingu og inn kom fyrrum Liverpool-maðurinn Michael Owen við litla hrifningu áhorfenda á bandi gestaliðsins. Owen náði að sýna lipur tilþrif á lokamínútunum. United náði ekki að nýta sér liðsmuninn til að skora annað mark en þess þurfti ekki. Liðið er komið áfram eftir þetta mark frá Giggs en hann átti stórleik í dag.
Enski boltinn Mest lesið „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum Íslenski boltinn Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Körfubolti Piastri fagnaði þriðja sigrinum í röð Formúla 1 Heimamaður setti met í fjölmennasta utanvegahlaupi Íslands Sport Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Íslenski boltinn „Vantar hjarta og baráttu í mína menn“ Fótbolti Hörður í hóp eftir tæplega tveggja ára meiðsli Fótbolti „Þetta er tilfinning sem maður nærist á“ Sport „Náðum að nýta kröftuga byrjun með mörkum“ Fótbolti Fleiri fréttir Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Klúður hjá Everton gegn Ipswich og langþráður sigur Leicester Vardy blés í flautu dómarans þegar hann féll við Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Sjá meira