Hermann spilaði í fimmta sigri Portsmouth í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2011 22:27 Hermann Hreiðarsson í leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Hermann Hreiðarsson hefur átt frábæra endurkomu í lið Portsmouth og spilaði allan leikinn í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á Scunthorpe á heimavelli. Dave Kitson og Aaron Mokoena skoruðu mörk Portsmouth í kvöld og lék Hermann að venju í stöðu vinstri bakvarðar. Hann sleit hásin fyrir tæpu ári síðan og byrjaði að spila aftur í október en hafði þar til á í febrúar oftast komið við sögu sem varamaður. Hermann vann sér svo fast sæti í byrjunarliðinu á ný þegar Portsmouth tapaði fyrir QPR, 2-0, þann 1. febrúar síðastliðinn. En síðan þá hefur Portsmouth ekki tapað leik og unnið síðustu fimm. Hermann hefur spilað hverja einustu mínútu í þessum leikjum og er liðið nú komið upp í tólfta sæti deildarinnar með 47 stig. Portsmouth er aðeins sjö stigum á eftir Leeds sem er í sjötta sætinu og því síðasta sem veitir umspilsrétt um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Það var einnig leikið í ensku C-deildinni í kvöld. Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn fyrir Huddersfield sem vann 1-0 útisigur á Hartlepool. Ármann Smári Björnsson var ekki í hópnum hjá Hartlepool. Þá var Matthías Vilhjálmsson ekki í leikmannahópi Colchester sem vann 1-0 útisigur á Bristol Rovers. Huddersfield er í þriðja sæti deildarinnar og Colchester í því sjöunda. Í Skotlandi vann Hibernian 2-1 sigur á Hamilton á útivelli. Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir Hibernian sem er á mikilli siglingu og hefur unnið fimm leiki í röð. Liðið var í næstneðsta sæti þegar Guðlaugur kom til liðsins í janúar en er nú í því áttunda.
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti „Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sport Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira