Grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið 12. mars 2011 12:26 Muammar Gaddafi leiðtogi Líbýu. Mynd/Getty
Yfirvöld á Vesturlöndum hafa gefið í skyn að það komi til greina að grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið í Líbýu. Enn berjast uppreisnarmenn og herlið ríkisstjórnarinnar um yfirráð yfir lykilborgum í Líbýu. Þær fregnir bárust frá átakasvæðum í Líbýu í gærkvöld að uppreisnarmenn héldu velli í olíuhöfninni Ras Lanuf eftir harða bardaga við herlið ríkisstjórnarinnar. Uppreisnarmenn stjórna nú öllum stærstu borgum austantil í landinu. Í höfuðborginni Trípóli eru opinberar öryggissveitir sagðar hafa beitt táragasi og skotið viðvörunarskotum til að dreifa mannfjölda við mosku áður en komið gæti til mótmæla. Ríkissjónvarp Libýu birti í gær myndir af fögnuði stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, þar sem þeir höfðu barið niður uppreisn í bænum Zawiyah vestan við höfuðborgina. Erlendir fjölmiðlar fullyrða að fjöldi uppreisnarmanna kalli nú eftir aðgerðum alþjóðasamfélagsins til að stöðva blóðbaðið í landinu, sem hófst með hörðum mótmælum gegn einræðisherranum Moammar Gaddafí. Þeir vona að vestræn ríki komi á flugbanni yfir Libýu til að stöðva loftárásir ríkisstjórnarinnar á mótmælendur og uppreisnarmenn. Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu að leita allra hugsanlegra leiða til að vernda saklausa borgara í Libýu, en minntust ekki sérstaklega á flugbann eftir fundahöld í Brussel í gær. Leiðtogar Bretlands og Frakklands eru sagðir hafa eindregnari vilja til að grípa til harðra aðgerða á borð við flugbann en aðrar Evrópusambandsþjóðir. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagðist hins vegar efast stórlega um hernaðarleg inngrip í Libýu. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, kvað jafnvel enn fastar að orði og fullyrti að alþjóðasamfélaginu bæri skylda til að stöðva blóðbaðið í Libýu, og það megi ekki breytast í aðrar eins hörmungar og áttu sér stað í Rúanda og Bosníu á tíunda áratugnum. Hann sagði að snaran væri að þrengjast um háls Gaddafís, og að engir kostir hefðu verið slegnir af borðinu á þessari stundu. Obama sagði bestu niðurstöðuna skýra í sínum huga; að Gaddafí fari frá völdum. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tók í sama streng og fullyrti að Gaddafi yrði að fara.
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Fleiri fréttir Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Sjá meira