Sex mörk í jafntefli Wolves og Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2011 17:58 Leikmenn Wolves horfa í átt til dómarans sem hefur dæmt mark af þeim. Mynd/AP
Wolves og Tottenham gerðu 3-3 jafntefli í frábærum fótboltaleik á Molineux í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham komst tvisvar yfir í leiknum en sá á eftir mikilvægum stigum í harðri baráttu um 4. sætið við Chelsea. Tottenham hafði heppnina með sér í tveimur umdeildum dómum og hefði því auðveldlega getað tapað þessum leik. Kevin Doyle kom Wolves í 1-0 á 20. mínútu með skalla eftir sendingu Nenad Milijas en Jermain Defoe svaraði með tveimur nánast eins mörkum með fjögurra mínútna millibilil. Bæði mörk Defoe komu með glæsilegum skotum fyrir utan teig, það fyrra á 30. mínútu og það seinna á 34. mínútu. Kevin Doyle jafnaði metin úr vítaspyrnu á 40. mínútu eftir að Alan Hutton hafði togað niður Nenad Milijas. Hutton var heppinn að sleppa með aðeins gult spjald. Roman Pavlyuchenko kom Tottenham aftur yfir á 48. með glæsilegu marki eftir sendingu frá Jermaine Jenas og það virtist vera sem Tottenham ætlaði að landa mikilvægum sigri. Úlfarnir sóttu hinsvegar í sig veðrið er leið á hálfleikinn og Richard Stearman virtist hafa jafnað leikinn á 80. mínútu. Mark Halsey dæmdi hinsvegar aukaspyrnu fyrir brot á Heurelho Gomes, markverði Tottenham, þótt að það liti út fyrir að Gomes hafi brotið meira á Stearman heldur en Stearman á honum. Wolves gafst þó ekki upp við þetta mótlæti og Steven Fletcher jafnaði metin sjö mínútum síðar með skalla eftir sendingu frá Matthew Jarvis. Það reyndist vera sjötta og síðasta mark leiksins sem bauð upp á allt það besta við enska fótboltann.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira