Enski boltinn

Hodgson hefur ekki áhuga á stormi í tebolla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glen Johnson fagnar marki sínu í gær.
Glen Johnson fagnar marki sínu í gær. Mynd/AP
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir ekkert til í þeim sögusögnum að það hafi verið eitthvað ósætti milli hans og bakvarðarins Glen Johnson þrátt fyrir að þeir hafi gagnrýnt hvorn annan í fjölmiðlum.

Johnson kom aftur inn í Liverpool í gær eftir meiðsli og skoraði fyrsta mark liðsins í 3-0 sigri á botnliði West Ham.

„Glen græddi á því að hann hefur þurft að hvíla sig vegna meiðslanna og mætti því ferskur í þennan leik," sagði Roy Hodgson.

„Það hefur tekið hann talsverðan tíma að ná sér góðum af meiðslunum en hann æfði vel alla vikuna og þar sjást vel að hann er orðinn heill," sagði Hodgson.

„Ég ætti kannski að reyna að kalla fram litla ólátabelginn í öllum leikmönnum ef það þýðir að menn spila eins og Glen gerði í þessum leik," sagði Hodgson í smá hæðnistón en Glen Johnson gagnrýndi stjórann á dögunum og Hodgson svaraði aðeins til baka.

„Ég hef annars ekki áhuga á stormi í tebolla. Glen Johnson er toppleikmaður og það vitum við öll. Það var gaman fyrir stuðningsmennina að sjá það hversu vel hann getur spilað," sagði Glen Hodgson.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×