Enska úrvalsdeildin ætlar að þvinga Sir Alex til þess að tala Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2010 09:15 Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Mynd/AFP
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, neitar enn að tala við blaðamenn BBC þrátt fyrir að honum beri skylda til þess að tala við rétthafa ensku úrvalsdeildarinnar. Ferguson hefur safnað upp dágóðum upphæðum í sektir fyrir að skrópa í viðtöl en nú á að gera allt til þess að Sir Alex mæti í öll viðtöl. Enska úrvalsdeildin ætlar að breyta þessu með því að setja nýja reglugerð þar sem stjórar og leikmenn fá stigvaxandi refsingar neiti þeir að tala við fjölmiðla eftir leiki sína. Ferguson hefur ekki talað við BBC í sex ár eða síðan að stöðin sýndi heimildarmynd um vafasöm vinnubrögð sonar hans Jason sem þá starfaði sem umboðsmaður. Á 24 ára stjóraferli sínum hefur hann sett alla stóru miðlanna á einhverjum tíma í fjölmiðlabann ef að honum hefur fundist halla eitthvað á sig eða sína.Alex Ferguson og Mike Phelan.Mynd/APFerguson hefur fengið sektir fyrir að tala ekki við BBC í vetur en enska úrvalsdeildin vill einnig koma í veg fyrir að stjórar geti hætt við blaðamannafundi á síðustu stundu. Ferguson hætti nú síðast við blaðmannafund sinn fyrir Arsenal-leikinn og gaf þá skýringu að hann hafi verið óánægður með framsetninguna á ummælum sínum fyrir Manchester-slaginn á dögunum. Það er talið að Ferguson hafi fengið um 65 þúsund pund í sekt fyrir fjölmiðlabann sitt á þessu tímabili en það gera um 11,8 milljónir íslenskra króna.
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira