Sænskir morðingjar leika lausum hala á Netinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. janúar 2010 21:45 Svíar vilja hefta þann aðgang sem fangar hafa að Netinu. Mynd/ AFP.
Morðingjar í sænskum fangelsum hafa frjálsan aðgang að Interneti úr fangelsisklefum sínum. Maður sem dæmdur hafði verið fyrir tvö morð skrifaði bloggfærslu um sjálfsmorð sitt áður en hann framdi það. Þetta kemur fram í Aftonbladet. Blaðið segir að sjálfsmorðið hafi gert marga Svía hugsi yfir því hvernig fangelsismálum er háttað í landinu, einkum hvernig aðgangur fanga að tölvum er. Karlmaðurinn sem bloggaði um sitt eigið sjálfsmorð hét Ulf Olsson, en hann lést á sunnudaginn. Hann sat inni fyrir að nauðga og myrða 10 ára gamla stúlku og myrða 26 ára gamla konu. Maðurinn hafði nánast alveg frjálsan aðgang að Internetinu á réttargeðdeildinni sem hann var vistaður á, að því er fram kemur í Aftonbladet. Þá notar raðmorðinginn Sture Bergwall, sem einnig er þekktur undir nafninu Thomas Quick, netið reglulega. Jyllands Posten segir að hann sé virkur á Twitter þar sem hann skrifi reglulega um daginn og veginn. Hann hafi meðal annars skrifað lista yfir þau „topp 10 morð sem hann hafi ekki framið" og þá skrifi hann jafnframt um þau morð sem hann er dæmdur fyrir. Þá hefur fríkirkjupresturinn Helge Fossmo, sem átti aðild að morði árið 2004, einnig birt færslur á Netinu. Hann skrifar hins vegar vini sínum utan fangelsismúranna sem birtir síðan skrifin á Netinu fyrir hann.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira