Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér odda­leik

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Emelía Ósk Gunnarsdóttir átti frábæran leik hjá Keflavík í kvöld.
Emelía Ósk Gunnarsdóttir átti frábæran leik hjá Keflavík í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Bikarmeistarar Keflavíkur héldu sér á lífi í úrslitakeppni Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld og tryggðu sér jafnframt oddaleik í einvígi sínu á móti KR í átta liða úrslitum. Keflavík vann 36 stiga stórsigur á KR-konum, 101-65, eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 30-9.

KR vann fyrsta leikhlutann 22-18 en þá vöknuðu heimakonur og sýndu af hverju það var búist við þeim í titilbaráttuna í ár.

Emelía Ósk Gunnarsdóttir átti frábæran leik hjá Keflavík en var án efa kona kvöldsins. Keishana Washington var líka mjög góð með 19 stig, 9 fráköst og 12 stoðsendingar.

Haukar, Njarðvík og Grindavík eru komin áfram en vita ekki um mótherja sína fyrr en eftir oddaleikinn í Vesturbænum á fimmtudagskvöldið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira