Enski boltinn

Scharner: Úrslit sem auka sjálfstraust

Elvar Geir Magnússon skrifar
Scharner og Martinez faðmast í kvöld, enda var full ástæða til.
Scharner og Martinez faðmast í kvöld, enda var full ástæða til.

Paul Scharner, leikmaður Wigan, telur að sigurinn gegn Liverpool muni virka sem vítamínssprauta á sjálfstraust liðsins.

„Þetta eru gríðarlega mikilvæg stig og magnað að ná sigri gegn Liverpool eftir slæmt gengi. Þetta er virkilega sterkt. Sjálfstraustið mun aukast núna," sagði Scharner.

Roberto Martinez, stjóri Wigan, var í skýjunum með úrslitin. „Menn lögðu sig alla fram og úrslitin voru eftir því. Þetta er einn af þeim dögum sem maður getur verið mjög stoltur af Wigan. Við verðum að halda áfram á þessari braut út tímabilið," sagði Martinez.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×