Enski boltinn

Rooney: Frúin heima með barnið

Elvar Geir Magnússon skrifar
Coleen, eiginkona Wayne Rooney.
Coleen, eiginkona Wayne Rooney.

Rio Ferdinand, fyrirliði enska landsliðsins, segir að eiginkonur og unnustur leikmanna hafi haft truflandi áhrif á síðustu stórmótum. Wayne Rooney, samherji hans hjá Englandi og Manchester United, tekur undir þetta.

„Það á ekkert að banna þeim að koma og styðja okkur. Síðast vorum við öll saman á hóteli og það var hinsvegar vandamál. Konan mín var að eignast barn og hún fer ekkert í sumar," sagði Rooney.

Miklar væntingar eru gerðar til enska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið í sumar sem fer fram í Suður-Afríku. „Við erum að fara til Suður-Afríku til að taka þátt í móti, ekki fara í frí," sagði Fabio Capello, þjálfari Englands.

Ferdinand segir að síðasta heimsmeistaramót hafi minnt sig á fjölleikahús en þá var eiginkonum og fjölskyldum leikmanna boðið með þeim. „Það var eins og heljarinnar sýning væri í gangi kringum enska hópinn. Þetta var eins og á frumsýningu í leikhúsi og fótboltinn var í aukahlutverki," sagði Ferdinand.

„Þú ert að taka þátt í stórmóti og þú gerir það ekki oft á þínum ferli. Til að eiga sem mestan möguleika verður að sýna einbeitingu. Að hafa bæði fjölskylduna og ljósmyndarana kringum sig var of mikið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×