Rooney bað stuðningsmenn United loksins afsökunar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. nóvember 2010 10:15 Wayne Rooney fagnaði marki sínu gegn Rangers vel og innilega. Nordic Photos / Getty Images
Wayne Rooney hefur loksins áttað sig á því að hann var alls ekki búinn að biðja stuðningsmenn Manchester United afsökunar á hegðun sinni. Frægt er þegar að Rooney setti allt á hvolf hjá Manchester United í síðasta mánuði þegar hann neitaði að skrifa undir nýjan samning og gaf í skyn að hann vildi fara frá Manchester United. En síðan, öllum að óvörum, skrifaði hann undir nýjan samning. Alex Ferguson, stjóri United, sagði að hann hefði beðið sig og leikmenn afsökunar og að hann myndi gera slíkt hið sama við stuðningsmenn félagsins. En sú afsökunarbeiðni hefur aldrei komið, þar til nú. Rooney á vítapunktinum.Nordic Photos / Getty Images „Mér finnst eins og að ég hafi beðið stuðningsmenn afsökunar en allir segja að ég hafi ekki gert það," sagði Rooney. „Ef það er tilfellið vil ég biðjast afsökunar á mínum þætti málsins." Rooney er nýbyrjaður að spila aftur eftir ökklameiðsli og skoraði sigurmarkið gegn Glasgow Rangers í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Þar var hans fyrsti leikur í byrjunarliði United og hans fyrsta mark eftir fjölmiðlafárið fyrr í haust. „Ég hef gert öllum ljóst að ég vil vera áfram hjá þessu félagi í mörg ár til viðbótar. Ég vil ná árangri hér," sagði Rooney sem var sterklega orðaður við Manchester City þegar útlit var fyrir að hann væri á leið frá United. „Trúið mér, ef ég hefði farið frá félaginu hefði ég farið frá Englandi," sagði Rooney um þær sögusagnir og bætti við að hann væri nú dauðfeginn að hafa ekki farið frá United. „Auðvitað. Það eru svo margir leikmenn sem hafa farið í gegnum tíðina og ekki gengið vel í framhaldinu. Ég er mjög ánægður með að hafa verið áfram."
Mest lesið Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Handbolti Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Körfubolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Handbolti Allt í skrúfunni fyrir HM: „Enginn viðburður“ Fótbolti „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Fótbolti „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Íslenski boltinn „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ Íslenski boltinn „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Sjá meira
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti