Vermaelen frá í mánuð til viðbótar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2010 18:45 Thomas Vermaelen, Cesc Fabregas og Carlos Vela. Nordic Photos / Getty Images
Belginn Thomas Vermaelen verður frá í mánuð til viðbótar þar sem hann er enn að glíma við meiðsli í hásin. Hann meiddist í landsleik gegn Tyrklandi þann 7. september síðastliðinn og segir Arsene Wenger, stjóri Arsenal, að endurhæfingin hafi lofað góðu. „Hann er ekki í nógu góðu formi og þarf að byggja það upp á ný. Það tekur um þrjár til fjórar vikur og á ég frekar von á því að hann geti byrjað aftur að spila í lok janúar," sagði Wenger við enska fjölmiðla. „Endurhæfingin hefur þó lofað góðu." Wenger bætti því við að hann ætli sér ekki að taka neinar áhættur með meiðsli Vermaelen. „Ég hef þurft að glíma við svo mörg bakslög að ég er afar varkár." Það eru þó góðar fréttir af meiðslamálum Arsenal. Kieran Gibbs ætti að verða klár í slaginn í byrjun janúar en hann hefur verið frá í tvær vikur vegna ökklameiðsla. Þá er Abou Diaby aftur leikfær eftir að hafa verið frá í tvo mánuði, einnig vegna ökklameiðsla. Wenger sagði að Diaby hafi verið í leikmannahópi Arsenal gegn Stoke um helgina en leiknum var frestað. Hið sama má segja um þá Cesc Fabregas og Robin van Persie en báðir hafa verið meiddir. Arsenal mætir Chelsea á mánudaginn og segir að aukavika hafi aðeins gert þeim gott. „Þeir hafa fengið viku til viðbótar til að jafna sig og það hjálpaði þeim." Manuel Almunia markvörður er einnig meiddur en hann ætti að geta spilað aftur í janúar, rétt eins og þeir Gibbs og Vermaelen. „Allir aðrir eru heilir," sagði Wenger.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira