Umbótasinnar myrtir í Teheran 29. desember 2009 00:30
Ómögulegt er að fá staðfest hversu margir hafa látist í mótmælunum í Íran, þar sem stjórnvöld hafa takmarkað mjög starf erlendra fréttamanna í landinu. Samkvæmt írönskum ríkisfjölmiðlum létust átta á sunnudaginn en umbótasinnar segja að fimmtán hafi látist. Hundruð manna hafa verið tekin höndum. Öryggissveitir stjórnvalda handtóku í gær fjölda umbótasinna þar á meðal samstarfsmenn Mirs Hosseins Mousavi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Þá var Seyed Ali Mousavi, frændi stjórnarandstöðuleiðtogans, myrtur í gær og hefur ólgan vaxið eftir að þær fréttir bárust út. Lík Seyeds Ali Mousavi var flutt af spítalanum og er nú í vörslu öryggissveitanna. Fulltrúar stjórnarinnar segja nauðsynlegt að kryfja líkið til að komast nákvæmlega að því hvað gerðist. Umbótasinnar segja þetta skrípaleik. Stjórn landsins sé að hindra það að Seyed Ali Mousavi verði jarðaður að íslömskum sið en samkvæmt honum eru látnir jarðaðir strax. Segja umbótasinnarnir að stjórnin sé hrædd við að jarðarförin muni leiða til enn frekari mótmæla en þau blossuðu einmitt fyrst upp 21. desember þegar umbótasinnaði klerkurinn Ayatolla Hoseyn Montazeri var jarðaður. Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Kanada hafa öll fordæmt aðgerðir írönsku öryggissveitanna. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði þær ólíðandi og hvatti stjórnvöld í Teheran til að virða almenn mannréttindi.- th
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Eldur kviknaði í Strætó Innlent Fleiri fréttir Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepnir í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Sjá meira