Fékk leigumorðingja til að myrða yfirmann sinn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. júlí 2009 07:18
Maður er í haldi lögreglu á Spáni, grunaður um að hafa fengið leigumorðingja til að myrða yfirmann sinn. Ástæðan fyrir morðinu var einföld en allsérstök. Maðurinn óttaðist að yfirmaður hans hefði í hyggju að segja honum upp störfum. Atvinnumál á Spáni eru í allt annað en góðu horfi svo hinn óttaslegni undirmaður, sem starfaði sem tæknimaður í ráðstefnumiðstöð í Barcelona, réði sex Kólumbíumenn með aðstoð systur sinnar og réðu þeir yfirmanninn af dögum. Þetta gerðist allt saman í byrjun febrúar síðastliðins og komst lögreglan til botns í málinu eftir langa og stranga rannsókn og handtók tæknimanninn núna í vikunni ásamt systur hans og leigumorðingjagenginu eins og það lagði sig. Samkvæmt dagblaðinu El Pais er þetta öfgafyllsta dæmið um þær ráðstafanir sem fólk hefur gripið til í þeirri viðleitni að halda starfi sínu. Hugmyndaríkir einstaklingar hafa þó gengið ansi langt. Byggingarverktaki nokkur rændi útibússtjóra bankans síns og hafði hann í haldi um tíma í von um að fá lán, það brást reyndar, og annar úr sama geira hótaði skuldunauti sínum að hann myndi kveikja í sjálfum sér greiddi hinn honum ekki skuldina. Ekki fylgdi sögunni hver málalokin þar urðu.
Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Erlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Sjá meira