Enski boltinn

Ferguson: Hélt við myndum kasta þessu frá okkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ferguson var ekki alveg nógu kátur í kvöld.
Ferguson var ekki alveg nógu kátur í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var eðlilega kátur með stigin þrjú í kvöld en ekki fullkomlega sáttur við frammistöðuna enda hefði United vel getað hleypt Portsmouth inn í leikinn í stöðunni 1-0.

„Í fyrri hálfleik spiluðum við einn okkar besta bolta í vetur. Við hefðum getað skorað fimm mörk. Í stað þess að klára leikinn gerðum við okkur erfitt fyrir og ég hélt við myndum kasta þessu frá okkur um tíma. Sem betur fer kláraði Carrick þetta fyrir okkur," sagði Fergsuon alls ekkinógu hress.

„Frammistaðan í síðari hálfleik sýndi okkur að það er ekkert gefið í þessu. Við verðum að setja fótinn niður allan tímann og megum ekki gefa svona færi á okkur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×