Stálu skilti úr Auschwitz til að ráðast á forsætisráðherra Svía Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. desember 2009 14:51 Fjöldi fólks var tekið af lífi í Auschwitz. Þar er nú safn til minningar um helförina. Mynd/ AFP
Talið er að þjófarnir sem stálu „Arbeit Macht Frei" skiltinu sem stóð við inngang útrýmingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi hafi ætlað að selja það til að fjármagna hryðjuverkaárásir á forsætisráðherra Svía og sænska þingið. Þetta er fullyrt í sænska Aftonbladet í dag. Í frétt um málið á fréttavefnum Timesonline segir að sænska lögreglan hafi staðfest að yfirvöld þar í landi tækju hótunum herskárra nýnasista um að trufla kosningar á næsta ári mjög alvarlega. „Við erum meðvitaðir um upplýsingarnar um hinar meintu árásaráætlanir," segir Patrik Peter, talsmaður sérsveitar sænsku lögreglunnar. „Við tökum þessu alvarlega og höfum gripið til aðgerða," segir hann. Þúsundir fanga í Auschwitz gengu framhjá þessu margfræga skilti sem bar skilaboðin „Vinnan frelsar ykkur" á hverjum degi á meðan Seinni heimsstyrjöldin stóð yfir. Í Auschwitz er nú rekið safn til minningar um helförina. Þaðan var skiltinu stolið á föstudaginn. Skiltið fannst svo aftur á mánudaginn. Þá hafði það verið brotið í þrjá hluta. Miklar vangaveltur hafa verið um það í Svíþjóð í dag hverjir gætu hafa stolið skiltinu eftir að fyrrverandi leiðtogi sænsks nasistahóps fullyrti að skiltinu hefði verið stolið eftir pöntun frá safnara í Englandi, Frakklandi eða Bandaríkjunum. „Það var maður sem var reiðubúinn til að greiða milljónir fyrir skiltið," sagði maðurinn í samtali við Aftonbladet. Hann fullyrti að peningana fyrir ránið hafi átt að nota til að ráðast á heimili Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svía, utanríkisráðuneytið í Svíþjóð og sænska þingið.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Sjá meira