Erlent

Stálu skilti úr Auschwitz til að ráðast á forsætisráðherra Svía

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks var tekið af lífi í Auschwitz. Þar er nú safn til minningar um helförina. Mynd/ AFP
Fjöldi fólks var tekið af lífi í Auschwitz. Þar er nú safn til minningar um helförina. Mynd/ AFP
Talið er að þjófarnir sem stálu „Arbeit Macht Frei" skiltinu sem stóð við inngang útrýmingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi hafi ætlað að selja það til að fjármagna hryðjuverkaárásir á forsætisráðherra Svía og sænska þingið. Þetta er fullyrt í sænska Aftonbladet í dag.

Í frétt um málið á fréttavefnum Timesonline segir að sænska lögreglan hafi staðfest að yfirvöld þar í landi tækju hótunum herskárra nýnasista um að trufla kosningar á næsta ári mjög alvarlega. „Við erum meðvitaðir um upplýsingarnar um hinar meintu árásaráætlanir," segir Patrik Peter, talsmaður sérsveitar sænsku lögreglunnar. „Við tökum þessu alvarlega og höfum gripið til aðgerða," segir hann.

Þúsundir fanga í Auschwitz gengu framhjá þessu margfræga skilti sem bar skilaboðin „Vinnan frelsar ykkur" á hverjum degi á meðan Seinni heimsstyrjöldin stóð yfir. Í Auschwitz er nú rekið safn til minningar um helförina. Þaðan var skiltinu stolið á föstudaginn. Skiltið fannst svo aftur á mánudaginn. Þá hafði það verið brotið í þrjá hluta.

Miklar vangaveltur hafa verið um það í Svíþjóð í dag hverjir gætu hafa stolið skiltinu eftir að fyrrverandi leiðtogi sænsks nasistahóps fullyrti að skiltinu hefði verið stolið eftir pöntun frá safnara í Englandi, Frakklandi eða Bandaríkjunum. „Það var maður sem var reiðubúinn til að greiða milljónir fyrir skiltið," sagði maðurinn í samtali við Aftonbladet.

Hann fullyrti að peningana fyrir ránið hafi átt að nota til að ráðast á heimili Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svía, utanríkisráðuneytið í Svíþjóð og sænska þingið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×