Erlent

Trump segir Bush að fara í felur

Trump hefur lítið álit á Bush sem forseta.
Trump hefur lítið álit á Bush sem forseta.
Donald Trump hefur eitt ráð fyrir George Bush Bandaríkjaforseta. Hann segir að Bush eigi að fara í felur svo að frambjóðandi Repúblikanaflokksins eigi möguleika á að verða kosinn í Hvíta húsið á næsta ári. Trump lét þessi orð falla í viðtali við Wolf Blitzer á CNN í kvöld.

Trump er þekktur fyrir lítið álit sitt á Bush. Hann segir forsetann var gríðarlegan dragbít á Repúblikanaflokkinn og forsetaembættið. "Það besta sem Bush getur gert fyrir flokk sinn er að láta sig hverfa," segir Trump.

Trump hefur áður sagt að Bush sé versti forseti í gervallri sögu Bandaríkjanna. "Við höfum farið úr þeirri stöðu að vera voldugasta ríki heimsins sem naut virðingar í að vera aðhlátursefni um allan heim," segir Trump um forsetatíð Bush.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×