Enski boltinn

Ferguson kennir einbeitingarleysi um

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ferguson og Wenger í þann mund að takast í hendur eftir leikinn í dag.
Ferguson og Wenger í þann mund að takast í hendur eftir leikinn í dag. Nordic Photos / Getty Images

Sir Alex Ferguson segir að einbeitingarleysi hafi kostað sína menn sigurinn gegn Arsenal í dag. Arsene Wenger var vitanlega hæstánægður með jöfnunarmarkið.

United komst tvívegis yfir í dag en Arsenal jafnaði í bæði skiptin. Síðara jöfnunarmarkið skoraði William Gallas í uppbótartíma.

„Við héldum að við værum búnir að vinna leikinn en svona er fótboltinn og ég trúi því hreint ekki að við köstuðum frá okkur sigrinum í lokin,“ sagði Ferguson. „Bæði mörkin má skrifa á einbeitingarleysi. Við hefðum átt að bjarga í horn í fyrra markinu.“

Hann segir þó að United hafi spilað vel í leiknum. „Við héldum boltanum vel og sköpuðum hættulegri færi. Við stjórnuðum leiknum vel þar til þeir skoruðu undir lokin.“

Mikill hamagangur var við mark United þegar að Gallas skoraði. Wenger sá ekki einu sinni markið sem hann skoraði.

„Þegar dómarinn stöðvaði leikinn hélt ég að hann væri að dæma aukaspyrnu á okkur. Það kom mér því á óvart þegar hann dæmdi mark. En eftir að ég sá atvikið í sjónvarpi var það vitaskuld augljóst að boltinn var kominn langt yfir línuna.“ 

Wenger segir að þrátt fyrir allt hafi úrslitin verið sanngjörn.

„Við spiluðum með handbremsuna á í fyrri hálfleik og leyfðum United að stjórna leiknum. Við vorum betri í seinni hálfleik og sýndum góðan karakter.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×