Enski boltinn

John Terry líklega ekki með á morgun

Elvar Geir Magnússon skrifar
John Terry leikur ekki með Englandi á morgun.
John Terry leikur ekki með Englandi á morgun.

John Terry, fyrirliði enska landsliðsins, verður líklega ekki með enska landsliðinu í leiknum gegn Rússlandi í Moskvu á morgun. Hné hans læstist á æfingu í dag og þurfti hann að hætta.

Terry hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli síðustu vikur, verið frá vegna skaddaðs kinnbeins og brotinnar tá.

Steve McClaren, landsliðsþjálfari, segist ekki gera ráð fyrir Terry í leiknum á morgun. Með sigri í leiknum er England öruggt með sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Austurríki og Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×